Húðin
Höfundur: Bergþóra Eiríksdóttir • 13. jan., 2004 • Flokkur: AlmenntHúðþekjan samanstendur af lifandi og dauðum frumum. Neðst í húðþekju laginu eru lifandi frumur, en á ytra yfirborðinu eru þær dauðar. Í neðsta lagi húðþekjunnar eiga sér stað frumuskiptingar sem viðhalda húðþekjunni. Þykkt húðþekjunnar er háð því hve örar frumuskiptingar eru neðst í húðþekjunni og hver ört dauðar frumur á ytra yfirborði húþekjunnar falla burt. Í heilbrigðri húð endurnýjast húðþekjan á u.þ.b. 3 vikum. Við suma sjúkdóma í húð er endurnýjun skemmri ( 3-8 dagar) og við það sést flasa á húðinni.
Í leðurlagi húðar er að finna tvær gerðir af kirtlum. Annarsvegar fitukirtla (gulir á mynd) og hinsvegar svitakirtla (grænir á mynd). Þessir kirtlar framleiða húðfeiti (sebum). Fitukirtlarnir leggja u.þ.b. 90 % af mörkum við framleiðslu húðfeitinnar en svitakirtlarnir u.þ.b. 10%. Báðir kirtlar tengjast hárslíðri (brúnt á mynd) og seita framleiðu afurð sinni út í hárslíðrið. Húðfeitin þrýstist út á yfirborð húðar við hreyfingar hársins (rautt á mynd). Húðfeitin heldur húðinni mjúkri og sveigjanlegri og viðheldur réttu rakastigi. Við suma sjúkdóma í húðinni getur húðfeitiframleiðslan minnkað og þá verður húðin þurr og mött. Í öðrum tilfellum getur húðfeitiframleiðslan aukist og þá verður húðin fitug.
Sjúkdómar í húð
Þegar sjúklegra breytinga verður vart á húð, geta undirliggandi ástæður verið mjög margbreytilegar. Auk þess geta ólíkir sjúkdómar valdið svipuðum einkennum á húð. Oft er því flókið og tímafrekt verk að finna upptök sjúkdómsins og reynir þá oft á þolrif bæði dýralæknis og eiganda dýrsins.
Dæmi um einkenni sem geta sést við húðsjúkdóma:
- Óeðlilega mikið háralos, sem getur leitt til myndun skallabletta.
- Flasa, sem ýmist getur verið í feitri húð eða þurri og mattri húð.
- Mikill kláði, sem getur leitt til þess að dýrið sleikir, klórar, eða bítur sig til blóðs.
- Húðsýkingar.
- Litabreytingar á húð.
- Litlir svartir nabbar (líkist fílapenslum)- oft sjást þeir best á kvið.
- Eyrnabólga.
(Einkennin geta sést eitt sér eða mörg saman)
Eins og áður sagði þá geta ástæður verið margar og ólíkar og stundum getur fleiri en einn sjúkdómur verið að verki.
Dæmi um sjúkdóma og ytri aðstæður sem valdið geta sjúklegum breytingum á húð:
- Sníkjudýr, t.d. hársekkjamaur (demodex) og húðmaur (Cheyletiella).
- Efnaskiptasjúkdómar, t.d. sjúkdómar í skjaldkirtli eða nýrnahettuberki.
- Vanstarfsemi í kynkirtlum (eggjastokkum eða eistum).
- Fóðuróþol og fóðurofnæmi.
- Sjálfsofnæmi.
- Æxli.
- Umhverfisþættir, t.d. reykingar, ryk og rykmaurar.
- Röng fóðrun, t.d. of eða van.
- Slys, t.d. bruni eða bitsár.
- Sýkingar (bakteríu eða sveppasýkingar).
Bergþóra Eiríksdóttir er dýralæknir, og hóf störf á stofunni 1. desember 2002 en er nú í barneignarfríi heima með soninn Eirík.
Skoða allar færslur sem Bergþóra Eiríksdóttir hefur skrifað

