Nýr dýralæknir kominn til starfa
Höfundur: Helga Finnsdóttir • 28. Nov, 2006 • Flokkur: FréttirFlora-Josephine, daglega kölluð Josie, lauk dýralæknanámi frá Dýralæknaháskólanum í Osló árið 2005. Josie sem er nýflutt til landsins, starfaði sem dýralæknir á Oslo Dyreklinik áður en hún kom hingað. Hún hefur alþjóðlegan bakgrunn og talar auk norsku, ensku, þýzku og frönsku og er nú á góðu skriði í íslenzkunáminu. Hún hefur mikinn áhuga á hundum og sérstaklega á hundaþjálfun og flutti dalmatíutíkina Spotniks Snap Shot, kallaða Sofie, með sér til landsins. Sofie sem var í bezta flokki í Noregi í hlýðni, er einnig meistari í sporaleit, norskur, íslenzkur og alþjóðlegur sýningarmeistari og auk þess “Københavnervinder” árið 2001. Josie hefur kennt Sofie margvíslegar listir sem þær vinkonurnar hafa sýnt bæði í sjónvarpi og víðar. Hér er stutt myndskeið þar sem Sofie sést leika listir sínar.
Josie hætti störfum hér á stofunn haustið 2007 vegna barneigna, en starfar nú sem héraðsdýralæknir í Búðardal.
Helga Finnsdóttir , dýralæknir, lauk námi frá Konunglega dýralækna- og landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn 1979. Starfaði sem dýralæknir á göngudeild skólans (Ambulatorisk Klinik) til ársloka 1980. Var í sérnámi í sjúkdómum hunda og katta í Kaupmannahöfn 1993 - 1996 og hlaut að námi loknu viðurkenningu danska dýralæknafélagsins sem fagdýralæknir í sjúkdómum hunda og katta. Hefur sótt fjölmörg námskeið erlendis eftir að námi lauk í smádýralækningum sem og atferli hunda og katta.
Formaður vísindaráðs Hundaræktarfélags Íslands og einn af stofnendum hvolpaskóla HRFÍ (1986) og viðurkenndur leiðbeinandi á hvolpanámskeiðum skólans. Ritsjóri SÁMS, félagsblaðs HRFÍ 1987 - 1992 og hefur ritað fjölmargar greinar um sjúkdóma hunda og katta. Hefur verið skipuð í nokkrar nefndir um málefni gæludýra.
Skoða allar færslur sem Helga Finnsdóttir hefur skrifað

