Dýralækningastofa Helgu Finnsdóttur

Skipasundi 15, 104 Reykjavík, Sími 553 7107

Sæðing með frystu sæði - og fæddir hvolpar!

Höfundur: Helga Finnsdóttir • 9. júní, 2008 • Flokkur: Fréttir, Hundar, Tilkynningar

Fyrsta tíkin sædd með frystu sæði!

         Sæðing á fyrstu tíkinni sem er sædd með frystu sæði hér á stofunni heppnaðist vel, en að venju var sætt beint í leg í gegnum legháls, þ.e. án skurðaaðgerðar.Tæpum fjórum vikum eftir sæðinguna var staðfest bæði með þreifingu á kvið (legi) að tíkin var hvolpafull. Nokkrir ósturbelgir voru áþreifanlegir og ómskoðun staðfesti fundinn. Þá þegar var einnig vitað að fóstrin væru ekki mörg, en þar sem um er að ræða fullorðna tík og í ljósi þess að frjósemin minnkar verulega með aldrinum, er árangurinn enn  ánægjulegri. Í júlí  (2007) lauk biðinni og tvær litlar, svartdoppóttar dalmatíutíkur fæddust vel  sprækar. 

 

Árangur með frystu sæði                                                                                                                                                                                          Árangur sæðinga með frystu sæði er almennt ekki eins góður og þegar notast er við ferskt sæði, en við stefnum að því hér á stofunni að árangurinn verði helzt ekki lakari en svo að getnaður verði í 6 af hverjum 10 tíkum (60%), sé tíkin heilbrigð, sæðið gott og að sætt sé á réttum tíma,  sem auðvitað krefst góðs undirbúnings. Reyndar er árangurinn fram til þessa mun betri en nokkur þorði að vona , en alls hafa 4 tíkur verið sæddar með frystu sæði -  og urðu allar hvolpafullar!  Nokkrar tíkur bíða sæðingar og vonandi verður árangurin áfram jafn góður og hingað til!

 

Hér eru svo myndir af hvolpunum sem hafa fæðst eftir sæðingu með frystu sæði  

 1.

depla

Depla, önnur tveggja dalmatíuhvolpa fæddist í júlí 2007

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

2.

Bulldogtíkin Milla fæddist í desember 2008

Bulldogtíkin Milla fæddist í desember 2008

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 3. 

Sheltiehundurinn Peyi fæddist í marz 2009

Sheltieprinsinn Peyi fæddist í marz 2009

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 4.

frosnir-cocker-hvolpar

Þrír enskir cockerhvolpar fæddir í apríl 2010

 

Helga Finnsdóttir , dýralæknir, lauk námi frá Konunglega dýralækna- og landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn 1979. Starfaði sem dýralæknir á göngudeild skólans (Ambulatorisk Klinik) til ársloka 1980. Var í sérnámi í sjúkdómum hunda og katta í Kaupmannahöfn 1993 - 1996 og hlaut að námi loknu viðurkenningu danska dýralæknafélagsins sem fagdýralæknir í sjúkdómum hunda og katta. Hefur sótt fjölmörg námskeið erlendis eftir að námi lauk í smádýralækningum sem og atferli hunda og katta. Formaður vísindaráðs Hundaræktarfélags Íslands og einn af stofnendum hvolpaskóla HRFÍ (1986) og viðurkenndur leiðbeinandi á hvolpanámskeiðum skólans. Ritsjóri SÁMS, félagsblaðs HRFÍ 1987 - 1992 og hefur ritað fjölmargar greinar um sjúkdóma hunda og katta. Hefur verið skipuð í nokkrar nefndir um málefni gæludýra.
Skoða allar færslur sem Helga Finnsdóttir hefur skrifað

Settu inn athugasemd