Dýralækningastofa Helgu Finnsdóttur

Skipasundi 15, 104 Reykjavík, Sími 553 7107

Gæludýr og gos

Höfundur: Helga Finnsdóttir • 18. apríl, 2010 • Flokkur: Almennt, Hundar, Kettir, Tilkynningar

Gæludýr og gos!                    eldgos_i_eyjafjallajokli_3

Eins og allir vita ríkir ákveðið hættuástand á landinu þessa dagana vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Eldgosið í jöklinum er frábrugðið gosinu á Fimmvörðuálsi að því leyti að það er undir jökli og því er ekkert hraunrennsli. Síbreytileg vindátt veldur því að fíngerð gjóskan sem myndast þegar kvikan splundrast við snertingu við vatn, berst víða með vindi, mengar gróður og vatn og getur borizt ofan í skepnur. Öskukornin eru oddhvöss eins og örsmá glerbrot og særa augu, öndunarfæri og meltingarveg. Berist þau ofan í dýr geta þau valdið niðurgangi, hjá grasbítum tannsliti og fótsæri hjá þeim dýrum sem þurfa að ganga í öskunni. Einnig inniheldur askan flúor sem loðir við yfirborð kornanna og þeim mun meiri sem askan er fínni. Flúormenguð aska mengar kyrrstætt vatn (polla og vötn) og getur valdið eitrun sem er hættulegust ungum dýrum.  

 

Er hundum  og köttum einhver hætta búin?

Auðvigos-og-hrossahopur1tað eru hestar og sauðfé sem ganga úti að jafnaði í mestri hættu, en er hundunum okkar og köttum einhver hætta búin?  Gosaska getur haft áhrif á fólk og þá einkum öndunarfæri og augu. Ekki er ástæða til að ætla annað en að það gildi líka um hunda og  ketti. Fólki er þess vegna bent á, þar sem gosmökkur er sýnilegur og á öskufallssvæði, að nota rykgrímur. Það getur hins vegar reynzt erfitt þegar dýr eiga í hlut. Hundar þurfa að fara út til að sinna daglegum þörfum sínum og eru mikil vanadýr hvað það snertir og fullorðnum hundi t.d. gæti reynzt það afskaplega erfitt, kæmist hann ekki út til þess.

 

Haldið  dýrunum inni!    hundur-og-band3

Ertingu af völdum öskunnar er unnt að takmarka með því að hafa útiveruna sem stytzta - og i taumi.  Hundeigendum ættu því að miða  ,, nauðsynlega” útiveru við þann tíma sem hundurinn þarf til að athafna sig, en sleppa daglegum gönguferðum meðan á öskufalli stendur. Setjist aska í feldinn ætti að skola hana af, því efalaust getur hún valdið óþægindum og ertingu og einnig má skola augun með volgu vatni.    

 

Grímur? 

Þó fólki sé ráðlagt að nota grímur, er erfitt að setja grímur á dýr, þær líka tæpast fáanlegar og örugglega enginn skilningur hundsins eða sérstaklega kisu á nauðsyn þess að nota þær. En sé á því brýn nauðsyn, gæti handlaginn eigandi örugglega útbúið lipra grímu um trýni og fest með teygju aftur á hnakka, en vissulega fer það svo nokkuð eftir einstaklingnum hvort gríman tollir!  

 

Mun auðveldara er að halda köttum alfarið inni og flestir kunna þeir að nota sandkassa. Kattaeigendur eru því því eindregið hvattir til að loka kisu inni meðan á öskufallinu stendur og setja hjá henni sandkassa með góðum sandi í.  

Eitrun af völdum flúormengunar í hundum og köttum er harla ósennileg nema þau komist í flúormengað vatn sem ætti að vera einfalt að fyrirbyggja.

 

goseldingJarðhræringar og eldgos valda dýrum ótta og hræðslu bæði vegna hávaðans og eins eldinganna sem kunna að fylgja, eins og raunin er í gosinu í Eyjafjallajökli. Hundeigendur í nánd eldstöðvanna ættu því alls ekki að setja hundana út nema í taumi eða bandi og fylgjast vel með þeim á meðan.  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Heimildir: Sigurður Sigurðarson, dýralæknir. Áhrif eldgosa á dýr.

Myndir af gosi: www.mbl.is

Helga Finnsdóttir , dýralæknir, lauk námi frá Konunglega dýralækna- og landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn 1979. Starfaði sem dýralæknir á göngudeild skólans (Ambulatorisk Klinik) til ársloka 1980. Var í sérnámi í sjúkdómum hunda og katta í Kaupmannahöfn 1993 - 1996 og hlaut að námi loknu viðurkenningu danska dýralæknafélagsins sem fagdýralæknir í sjúkdómum hunda og katta. Hefur sótt fjölmörg námskeið erlendis eftir að námi lauk í smádýralækningum sem og atferli hunda og katta. Formaður vísindaráðs Hundaræktarfélags Íslands og einn af stofnendum hvolpaskóla HRFÍ (1986) og viðurkenndur leiðbeinandi á hvolpanámskeiðum skólans. Ritsjóri SÁMS, félagsblaðs HRFÍ 1987 - 1992 og hefur ritað fjölmargar greinar um sjúkdóma hunda og katta. Hefur verið skipuð í nokkrar nefndir um málefni gæludýra.
Skoða allar færslur sem Helga Finnsdóttir hefur skrifað

Settu inn athugasemd