Dýralækningastofa Helgu Finnsdóttur

Skipasundi 15, 104 Reykjavík, Sími 553 7107

Fréttir

Rafmagnsólar og þjálfun

Höfundur: Helga Finnsdóttir • Monday, 9.May, 2005 • Flokkur: Fréttir

Þeir eru áreiðanlega fáir hundeigendurnir sem telja, að hundur verði hlýðnari með notkun tækja sem meiða hann. Það er þó því miður staðreynd, þó í algjörum undantekningartilfellum sé, að hundar eru þjálfaður með gadda-, rafmagns- eða hátíðnihálsólum. Það er illt til þess að hugsa að nokkur skuli telja það árangursríkt, jafnvel bara nokkuð flott, að [...]



Bann við innflutningi á eðlum og skjaldbökum

Höfundur: Helga Finnsdóttir • Wednesday, 23.Feb, 2005 • Flokkur: Fréttir

Umræða um bann við innflutningi sumra tegunda skriðdýra skýtur alltaf upp kollinum öðru hverju, en innflutningur skriðdýra á borð við skjaldbökur, slöngur og eðlur hefur verið bannaður frá því snemma á 9. áratug síðusta aldar. Mörgum virðist þetta heldur ósanngjarnt bann, en samkvæmt eftirfarandi grein Gísla Jónssonar, sérgreinadýralæknis á Keldum, er sannarlega rík ástæða fyrir [...]



Ný reglugerð um aðbúnað og umhirðu gæludýra og dýrahald í atvinnuskyni

Höfundur: Helga Finnsdóttir • Thursday, 13.Jan, 2005 • Flokkur: Fréttir

Ný reglugerð um aðbúnað og umhirðu gæludýra og dýrahald í atvinnuskyni hefur loksins litið dagsins ljós. Ákvæði nýju reglugerðarinnar eru mun afdráttarlausari og skýrari en gömlu reglugerðarinnar, enda gilti hún raunar aðeins um dýrahald í atvinnuskyni og var auk þess almennt orðuð. Sú reglugerð náði einnig yfir öll dýr en ekki gæludýr eingöngu. Löngu var [...]



Niðurgangskvilli í hundum hefur gert vart við sig í hundum í vor og sumar

Höfundur: Helga Finnsdóttir • Saturday, 25.Sep, 2004 • Flokkur: Fréttir

Snemma í vor bar á því, að hundar fengju niðurgang og stundum fylgdu uppköst með. Í flestum tilfellum varð hundurinn ekki lasinn og gekk þetta yfir á nokkrum dögum. Í byrjun var því um kennt að hundurinn hefði étið eitthvað miður hollt, gleypt geitung eða orðið kalt. En með haustinu varð ljóst að ekki var [...]



Bólusetning gegn smáveirusótt hafin með lifandi bóluefni

Höfundur: Helga Finnsdóttir • Saturday, 11.Oct, 2003 • Flokkur: Fréttir

Hér á stofunni var byrjað að bólusetja hunda gegn smáveirusótt með lifandi bóluefni föstudaginn 10.október, en fram til þessa hafði notkun lifandi bóluefnis verið bönnuð. Hundeigendur urðu margir hverjir varir við það í sumar, að bóluefni gegn smáveirusótt var ekki fáanlegt. Ástæðan var sú að bóluefnið Canlan, sem inniheldur mótefni gegn bæði smáveirusótt og smitandi [...]



Kynþroski hunda og gelding

Höfundur: Helga Finnsdóttir • Thursday, 25.Sep, 2003 • Flokkur: Fréttir

 Kynþroski hunda og gelding             Hundar verða að jafnaði kynþroska 8 – 10 mánaða, þó þeir getir verið frjóir frá 6 mánaða aldri. Hundar af smáhundakyni verða heldur fyrr kynþroska en hundar af stærri hundakynjum og almennt verða þeir seinna kynþroska en tíkur af sömu tegund. Á kynþroskaskeiðinu stækka eistun og ná fullum þroska [...]