Smitandi lifrarbólga í hundum
Höfundur: Helga Finnsdóttir • Saturday, 11.Feb, 2006 • Flokkur: Hundar
Sjúkdómurinn smitandi lifrarbólga greindist fyrst í silfurrefum árið 1925, en ekki sem sérstakur sjúkdómur í hundum fyrr en árið 1947. Fram til þess tíma var smitandi lifrarbólga álitin hluti af sjúkdómseinkennum hundapestarinnar og að heilabólgan í refum væri jafnframt af sama toga. Smitandi lifrarbólga hefur verið þekktur sjúkdómur í hundum á Íslandi undanfarna rúma tvo [...]







